Bleikiefni duftið frá Sonett er án efa töfraefni sem allir þurfa að eiga í þvottahúsinu. Hægt er að bæta því reglulega saman við þvottaefnið þegar hvítur þvottur er þveginn og viðhalda honum þannig hvítum og ferskum. Það er aldeilis ekki allt sem þetta efni gerir. Við tókum saman nokkur góð ráð sem nýta má bleikiefnið í. 

 

Fjarlæðu bletti úr uppþvottavélinni

Setjið eina fulla teskeið (u.þ.b. 10 ml/10g) af bleikiefna dufti í uppþvottavélina til viðbótar við uppþvottavélarduftið og hressið vel upp á uppþvottavélina. 

 

Fjarlægðu kaffi og te lit úr uppáhalds bollanum

Setjið 1/2 tsk bleikiefna dufti í bollann, því næst mjög heitt vatn ofan hann og láttu klukkutíma eða svo líða. Skolið vandlega.

 

Hreinsaðu eldhúsvaskinn

Setjið tappann í vaskinn og stráið teskeið af bleikiefna dufti yfir í vaskinn, hellið mjög heitu eða sjóðandi vatni yfir. Leyfið blöndunni að liggja í vatninu í klukkustund eða meira og vaskurinn verður eins og nýr á eftir. 

 

Bjargaðu brenndum pottum og pönnum

Stráið ½ -1 tsk í botninn á pottinum og  hellið sjóðandi heitu vatni yfir. Látið vatnið liggja yfir nótt í pottinum og þá ætti að vera auðvelt að klára að þrífa pottinn að morgni.


Hreinsaðu klósettið extra vel

Hellið heitu vatni ofan í klósettskálina, setjið því næst ca msk af bleikiefna duftinu ofan í og látið það um að leysa upp lit og bletti yfir nóttina. 

Hreinsaðu niðurföllin

Setjið 1 msk af bleikiefna duftinu ofan í niðurfallið, hellið sjóðandi vatni yfir og  látið liggja yfir nótt. Skolið með heitu vatni daginn eftir. 

 

Bleikiefni duftið: 

  •  Fjarlægir alla oxandi bletti eins og eftir ávexti, rauðvín, te, kaffi, gras, blóð og svo framvegis.
  • Kemur í veg fyrir að hvítur þvottur gráni.
  • Lífgar við upp gulnaðan og gráleitan þvott