BUY ONLINE

Order A Bottle Or Two

  • Gólfhreinsiefni sem verndar gólfefnið með náttúrulegri vax filmu án þess að byggja upp lög. Hentar fyrir flestar gerðir gólfefna, m.a. flísar, kork, parket og stein. Ekki má nota hreinsiefnið óblandað. Hristið vel fyrir notkun. Efnið getur dekkt ómeðhöndlaðan við. Blandið 5 ml af gólfhreinsiefninu við 5L af volgu vatni.
  • Hreinsar vel allt gler án þess að skilja eftir rákir, fjarlægir skordýr af bílrúðum á áhrifaríkan hátt. Skilur eftir sig ferska og góða lykt. Innihaldsefni: jurtaalkóhól (etanól), sykurtensíð, kókosolíu alkóhól súlfat, náttúruleg ilmkjarnaolía úr lavender* og lemongrass*, hvirflað vatn. * frá vottaðri lífrænni ræktun Gler- og alhreinsiúðinn er fáanlegur í 500ml úðabrúsa og 10L umbúðum
  • Baðhreinsiúði með sítrónusýru. Hentar vel þegar þarf að eyða kalk óhreinindum og fitublettum á sama tíma. Hægt að nota á steinlaust stál, gólfflísar og sturtuveggi. Notkun: Spreyið á óhreinindin og bíðið í nokkrar mínútur. Þurrkið af og þvoið með vatni. Athugið, hentar ekki á marmara, gervistein eða steypu. Baðhreinsiúðinn er fáanlegur í 500 ml og 10L brúsum.
  • Alhreinsilögurinn hreinsar og verndar gólf, flísar, vaska, eldhúsáhöld, bíla og fleira. Hentar einnig fyrir stóra glugga. Sápan fer vel með viðkvæma húð og er vegan. Skammtastærðir: Það fer eftir því hversu erfið hreinsunin er, en miðað er við 5-10 ml af hreinsiefninu á móti 10L af vatni. Fyrir glugga er mælt með 5 ml á móti 5L af vatni. Alhreinsilögurinn er fáanlegur í 500ml og 1L brúsum.
  • Hentar fyrir flestan þvott, t.d. bómul, hör, hamp, flísefni, softshell flíkur, Goretex og fabric blends í 30-60°C. Ekki er þörf á að nota mýkingarefni með þessu þvottaefni. Kemur í 1,5L og 10 l
  • Fyrir allan hvítan og litaðan þvott úr bómull, hör, hampi og gerviefnum. Sykurtensínið og kókosolíu alkahól súlfat eru þau efni sem brotna auðveldast niður í náttúrunni næst á eftir sápu og eru mild fyrir húðina. Þennan þvottalög má einnig nota í kalt vatn og fyrir dökkan þvott. Með lífrænni sápu úr jurtaolíu, án ensím og annarra erfðabreyttra efna. Hentugur fyrir hvítt og litað efni. Þvottalögurinn inniheldur ilm af lavender ilmkjarnaolíu frá löggiltri lífrænni ræktun 100% niðurbrjótanlegur í náttúrunni. Fáanlegt í 1L, 2L, 10L og 20L umbúðum
  • Styrkir, mýkir og fer vel með öll efni úr bómull, hör, hampi og blönduðum efnum. Auðveldar straujun, jafnvel þegar það þarf að strauja þurr og krumpuð föt. Við notkun, krumpast flíkurnar síður, haldast lengur glæsilegar og hrinda frá sér óhreinindum. Kemur í 0.5L úðabrúsa
  • Fyrir reglulega endurnýjun á mikið notuðum ullarefnum. Ef ullarsápan er notuð reglulega mun Sonett ullarfitan gefa ullinni aftur nauðsynlega ullarfitu til að viðhalda mýkt sinni. Ilmur af lavender ilmkjarnaolíumolíum, unnin úr lífrænni ræktun. 100% niðurbrjótanlegt Kemur í 300ml flösku
  • Fyrir þvottavél og handþvott upp að 40°C (100°F) Ólívuolía er besti grunnurinn fyrir sápu sem er mild og hlífir ullinni. Þessi fljótandi sápa hentar sérstaklega vel til að þvo ullar- og silkifatnað ásamt því að vera góð fyrir allan viðkvæman fatnað. Kemur í 120ml og 1L
  • Hefðbundin blettasápa, hentar öllum efnum einnig fyrir viðkvæm efni úr ull og silki. Virkar gegn blettum frá ávöxtum, kakói, kúlupennum, fitu o.fl. 100% niðurbrjótanleg vara. Kemur í 100ml úðabrúsum.
  • Fljótandi hreinsilögur með lífrænni sápu úr jurtaolíu. Hefur reynst árangursríkur á bletti frá fitu, ávöxtum, grasi, kúlupenna, blóði o.s.frv. Prófið endilega fyrst á földu svæði á efninu til að sjá hversu litekta efnið er. Með lífrænni sápu úr jurtaolíu 100% niðurbrjótanleg vara. Fáanlegur í 120ml og 300ml
  • Hefðbundin blettasápa í föstu formi, hefur reynst árangursrík á bletti frá fitu, ávöxtum, grasi, kúlupenna, blóði o.s.frv. Prófið endilega fyrst á földu svæði á efninu til að sjá hversu litekta efnið er. Með lífrænni sápu úr jurtaolíu 100% niðurbrjótanleg vara. Fáanleg í 100 gr
Go to Top